Dæmi um verkefni sem giggarar taka að sér:
Smíði og viðhald á palli eða girðingu
Uppsetning á innréttingum og fataskápum
Skipt um hurðir, glugga og lista
Parket- og gólfefnalögn
Viðgerðir á þaki og klæðningu
Minni viðhaldsverk í íbúð eða sumarbústað

Hvað kostar að fá smið?
Verðið fer eftir umfangi verksins og efni. Á Giggó færðu tilboð frá smiðum og getur borið þau saman.
Get ég fengið smið í lítið verk?
Já. Mörg gigg á Giggó eru smærri verk, til dæmis að setja upp hillur eða laga hurð. Lýstu verkinu vel svo giggarar geti gefið rétt tilboð.
Þarf smiðurinn að vera húsasmíðameistari?
Stærri framkvæmdir sem eru háðar byggingarleyfi krefjast húsasmíðameistara. Í minni verkum skipta reynsla og umsagnir mestu. Spurðu um réttindi í spjallinu.