Dæmi um verkefni sem giggarar taka að sér:
Aðstoð við burð í flutningum
Flutningur með sendibíl
Flutningur á einstökum húsgögnum eða heimilistækjum
Ferð með rusl og dót á endurvinnslustöð
Pökkun og samsetning húsgagna
Aðstoð við að koma dóti í geymslu

Hvað kostar aðstoð við flutninga?
Verðið fer eftir magni, vegalengd og því hvort þörf er á bíl. Á Giggó færðu tilboð og getur borið þau saman.
Hversu fljótt get ég fengið aðstoð?
Taktu fram hvenær flutningurinn á að fara fram. Því fyrr sem þú póstar verkinu, því fleiri giggarar ná að bjóða í það.
Hvað á ég að taka fram í lýsingunni?
Hvaðan og hvert á að flytja, á hvaða hæð og hvort lyfta er til staðar, og hvað þarf að flytja.