Giggó appið (hér eftir einnig nefnt Giggó) er kerfi í eigu Alfreðs ehf. sem hefur þann tilgang að tengja saman fólk og verkefni. Notendur appsins geta auglýst tímabundin verkefni, sem við köllum gigg, og giggarar geta tekið þau að sér gegn gjaldi. Alfreð ehf. (hér eftir einnig vísað til sem Giggó eða við) leggur ríka áherslu á persónuvernd notenda Giggó og að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög.

Persónuupplýsingar eru upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, en með því síðarnefnda er átt við að unnt sé að persónugreina hann, beint eða óbeint, á grundvelli tiltekinna upplýsinga.

Í persónuverndarstefnu fyrir Giggó appið er meðal annars fjallað um hver beri ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga, hvaða persónuupplýsingum er safnað og í hvaða tilgangi, hvernig þær eru notaðar, hvernig öryggi þeirra er tryggt og hvaða réttindi persónuverndarlöggjöfin veitir notendum.

Persónuverndarstefna fyrir Giggó appið nær til allra notenda appsins (hér eftir einnig nefnt “þú”). Notendur geta verið þeir sem auglýsa gigg, svokallaðir auglýsendur, þeir sem taka að sér gigg, svokallaðir giggarar, og þeir sem sækja appið aðeins til þess að skoða það.

1. Skilgreiningar

Giggó appið (einnig nefnt appið) er kerfi sem notendur geta hlaðið í símann sinn og notað til þess að auglýsa eða taka að sér, svokölluð “gigg”.

Gigg er afmarkað, tímabundið verkefni sem auglýsendur vilja láta vinna fyrir sig gegn þóknun.

Notendur eru giggarar, auglýsendur og þeir sem hlaða appinu niður aðeins til þess að skoða það.

Giggó prófíll er svæði í appinu sem inniheldur upplýsingar um notendur sem skrá sig inn í appið til þess að vera auglýsendur og giggarar. Notendur þurfa að fylla út lágmarksupplýsingar, s.s. fullt nafn og netfang. Notendur sem vilja bæði auglýsa gigg og vera giggarar gera það með sama prófílnum.

Giggarar eru notendur Giggó appsins sem skrá sig inn í appið með netfangi og fylla út lágmarksupplýsingar til þess að geta verið giggarar og tekið að sér gigg fyrir auglýsendur.

Auglýsendur eru notendur Giggó appsins sem skrá sig inn í appið með netfangi og fylla út lágmarksupplýsingar til þess að geta auglýst gigg.

Pósthólf er spjallsvæði í Giggó appinu sem auglýsendur og giggarar nota til þess að eiga samskipti sín á milli um tiltekið gigg, þ.e. á milli eins auglýsanda og eins giggara. Nýtt spjallsvæði opnast fyrir hvert gigg, jafnvel þótt auglýsandi og giggari hafi átt samskipti áður um annað gigg.

2. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga 

Persónuupplýsingar sem notandi skráir í Giggó appið eru geymdar með rafrænum hætti í appinu. Alfreð ehf. er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem notendur skrá í Giggó appið.

Notendur sem vinna með persónuupplýsingar annarra notenda, s.s. vegna samningagerðar, þannig að þeir ákveða sjálfir framkvæmd, tilgang og aðferð vinnslunnar, eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar slíkrar vinnslu og bera þær lagaskyldur sem af því leiðir. Alfreð ehf. ber ekki ábyrgð á slíkri vinnslu né á þeirri ákvörðun notenda að afhenda öðrum notendum frekari persónuupplýsingar, umfram það sem gert er ráð fyrir í kerfinu.

3. Hvernig söfnum við persónuupplýsingum og hvaða persónuupplýsingar vinnur Giggó með.

Giggó vinnur með persónuupplýsingar notenda Giggó appsins, sem þeir skrá sjálfir í appið og eru nauðsynlegar til þess að tengja saman auglýsendur og giggara. Auglýsendur og giggarar afhenda, t.d. eftirfarandi upplýsingar:

Upplýsingar í prófíl notenda: Fullt nafn, netfang, lýsingu á sér sem giggara, lýsing á giggi, myndir eða hlekkir af fyrri verkefnum, mynd í prófíl, staðsetningu, tögg, o.s.frv.

Samskiptaupplýsingar: Upplýsingar um samskipti í pósthólfi notanda við Alfreð ehf. og aðra notendur appsins.

Viðhorfsupplýsingar: Upplýsingar sem auglýsendur skrá um giggara með því að gefa stjörnur og umsagnir að loknu giggi. Efni og innihald umsagna skal vera í samræmi við notkunarskilmála Giggó appsins.

3.1. Notendur afhenda einnig eftirfarandi upplýsingar sem unnið er með í Giggó appinu.

Upplýsingar um notkun á Giggó, athæfi eða viðhorf notenda til þjónustu s.s. upplýsingar um hversu oft er smellt á tiltekið gigg eða giggara og stjörnugjöf auglýsenda. Einnig vinnum við með upplýsingar um það þegar giggara er boðið gigg og þegar auglýsandi hefur fundið giggara.

Þá vinnum við með upplýsingar um tækið þitt og notkun í appinu. Ef við fáum tilkynningu um tæknileg frávik eða beiðni um aðstoð þegar þú notar appið fáum við upplýsingar um útgáfu appsins sem þú notar, tækið þitt, þ.m.t. stýrikerfi og vélbúnað, auk annarra upplýsinga sem okkur eru nauðsynlegar til þess að laga villur í hugbúnaði og bæta vörur okkar og þjónustu.

Þessu til viðbótar kann Giggó að vinna með aðrar upplýsingar um þig sem eru nauðsynlegar svo félagið geti sinnt þjónustu sinni eða gætt lögmætra hagsmuna og er framangreint því ekki tæmandi.

Rafræn auðkenni: Notendur Giggó hafa kost á því að nota rafræn auðkenni til þess að auðkenna sig. Velji notendur að gera það afhenda þeir Alfreð ehf., t.d. upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer.

4. Hver er tilgangur Giggós með vinnslu persónuupplýsinga

Tilgangur Giggó með vinnslu persónuupplýsinga er að veita notendum þjónustu í appinu og felst vinnslan meðal annars í því að:

  • Auðkenna notendur við innskráningu í Giggó appið.

  • Safna viðeigandi upplýsingum um notendur sem þeir skrá sjálfir í eigin Giggó prófíl. Það gerum við svo giggarar láti í té upplýsingar um sig sem mestu máli skipta svo þeir geti fengið giggin sem þeir vilja og svo auglýsendur geti valið þann giggara sem þeim líst best á til að framkvæma auglýst gigg.

  • Eiga samskipti við notendur og gera notendum kleift að eiga samskipti við aðra notendur Giggó.

  • Þróa vörur okkar og þjónustu.

  • Sinna markaðs- og kynningarstarfi fyrir Giggó, s.s. með rafrænu fréttabréfi um þjónustu okkar, tilkynningar um fyrirhugaðar breytingar eða umbætur.

  • Við framkvæmd á tölfræðilegri greiningu, svo sem þegar nýrri þjónustu/vöru er bætt við hjá okkur eða til þess að bæta núverandi þjónustu/vörur.

  • Gæta lögmætra hagsmuna okkar og uppfylla lagaskyldur sem á okkur kunna að hvíla.

5. Á hvaða lagagrundvelli vinnur Alfreð ehf. með persónuupplýsingar í Giggó appinu?

Persónuupplýsingar í Giggó appinu eru unnar á grundvelli samþykkis notenda og til þess að efna við þá samning. Persónuupplýsingar geta einnig verið unnar svo okkur sé unnt að sinna lagalegum skyldum og gæta lögmætra hagsmuna okkar eða viðskiptavina okkar, s.s.:

  • að bæta og þróa þjónustu okkar;

  • að lagfæra villur sem koma upp við notkun þjónustu okkar;

  • að tryggja öryggisafrit og endurheimt kerfa og gagna þegar kerfi bila;

  • að verja réttarkröfur Alfreðs ehf. og viðskiptavina;

  • að meta gæði þjónustu okkar;

  • að hafa samband við þig vegna gagnkvæms viðskiptasambands, þ.m.t. beinnar markaðssetningar.

  • að gæta þess að notendur fari eftir notendaskilmálum.

6. Hvernig tryggjum við nákvæmni, áreiðanleika og öryggi persónuupplýsinga

Giggó leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga bæði með skipulagslegum og tæknilegum ráðstöfunum. Giggó appið er hannað með öryggi og persónuvernd í huga. Við innskráningu þurfa notendur að skrá nafn og netfang en þeim er í sjálfsvald sett hvort þeir nota rafræna auðkenningu. Ef notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum er fullt nafn þeirra birt í appinu, eins og það er skráð í Þjóðskrá og er sýnilegt öðrum notendum. Að öðru leyti kemur enginn milliliður að skráningu persónuupplýsinga notenda í prófíl og þannig er leitast við að auka áreiðanleika og nákvæmni skráðra persónuupplýsinga í appinu. Þá geta notendur einnig skráð sig inn í kerfið og eytt eða breytt upplýsingum í prófíl sínum, sbr. nánari umfjöllun í notendaskilmálum Giggó.

Við leitumst við að gæta þess að hugbúnaður sem við notum frá þriðja aðila uppfylli skilyrði laga um vinnslu persónuupplýsinga. Þá framkvæmum við áhættumat þar sem áhættuþættir upplýsingaöryggis í tengslum við persónuupplýsingar eru metnir og gripið til ráðstafana ef þörf er á. Einnig höfum við sett okkur stefnu um samfelldan rekstur og öryggisstefnu, þar sem meðal annars er fjallað um aðgangsstýringu, gerð vinnslusamninga, netöryggislausnir, aðgengi að húsnæði, þagnar- og trúnaðarskyldu starfsmanna, sem og fræðslu.

Verði öryggisbrestur hjá okkur fylgjum við ákveðnum verklagsreglum, s.s. að tilkynna til Persónuverndar og ef öryggisbresturinn leiðir af sér mikla áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklinga þá munum við upplýsa þig um hann.

Ef þú telur að persónuupplýsingar þínar séu í hættu, að einhver hafi komist yfir aðgangsupplýsingar þínar, þ.e. netfang og talnakóða eða aðrar upplýsingar vinsamlegast hafðu samband við okkur með því að senda tölvupóst á netfangið, giggo@giggo.is.

7. Hverjum afhendum við persónuupplýsingar þínar

Notendur sem skrá sig inn í appið geta verið giggarar, auglýsendur eða hvoru tveggja. Auglýsing um gigg og upplýsingar í prófíl auglýsenda, birtist og eru þar með afhentar, öllum notendum appsins um leið og gigg er skráð. Giggarar afhenda auglýsendum þeirra gigga, sem þeir sækjast eftur giggi hjá, upplýsingar í prófílum sínum um leið og þeir bjóða sig fram í giggið í gegnum pósthólf í appinu.

Endurgjafir auglýsenda birtast í prófílum giggara, og eru þær því afhentar eins og aðrar upplýsingar í prófíl notenda.

Auk upplýsinga í prófíl afhenda notendur hver öðrum upplýsingar í pósthólfi appsins þegar þeir eiga í samningaviðræðum um giggið og skulu þeir gæta þess að gera það í samræmi við Notkunarskilmála notenda Giggó appsins.

Starfsmenn Giggó fá einnig aðgang að persónuupplýsingum notenda eins og þörf krefur starfsins vegna.

Í þeim tilgangi að þróa og styðja við þjónustu okkar kunnum við einnig að flytja persónuupplýsingar þínar til þróunaraðila á appi Giggós og gerum um það sérstakan vinnslusamning. Hér er um að ræða Alfréd Jobs s.r.o., sem starfar samkvæmt lögum Lýðveldisins Tékklands, með skráða skrifstofu að Thámova 181/20, Karlín, 186 00 Prag 8, skráningarnr. 04028031, skrá í fyrirtækjaskrá nr. C 240951, sem héraðsdómurinn í Prag heldur.

Einnig kunnum við að flytja persónuupplýsingar þínar til skýjaþjónustuveitenda, þjónustuaðila sem veita stuðnings- og viðhaldsþjónustu, lögfræðiráðgjafa okkar vegna samningsgerðar eða lausn ágreiningsmála og til ytri endurskoðunar- og skattaráðgjafa. Í slíkum tilvikum grípum við til viðeigandi ráðstafana til þess að tryggja öryggi persónuupplýsinga, s.s. með gerð samninga.

Þessu til viðbótar kunnum við að afhenda yfirvöldum eða öðrum persónuupplýsingar ef slíkt byggir á lagaskyldu eða ákvæðum í samningi okkar. Við munum leitast við að upplýsa þig um slík tilvik nema okkur sé það fyrirmunað skv. lögum.

Við leitumst við að gæta þess að vinnsla persónuupplýsinga þinna eigi sér stað innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins eða ríkja sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd skv. auglýsingu Persónuverndar, og verði ekki miðlað annað nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar.

8. Hversu lengi vinnum við með persónuupplýsingar

Giggó vinnur með persónuupplýsingar þínar á meðan það er nauðsynlegt og málefnalegt til að ná því markmiði sem að er stefnt með vinnslunni, eins og lýst hefur verið hér að ofan, uppfylla samning okkar skv. notendaskilmálum Giggó, skv. lagaskyldu eða ef lögmætir hagsmunir Giggó krefjast þess.

Auglýsendur og giggarar geta skráð sig inn í appið hvenær sem er og breytt eða eytt persónuupplýsingum sínum í appinu að vild. Augýsendur þurfa þó að loka giggum áður en þeir geta eytt próflum sínum og notendur geta ekki eytt samskiptum sem þeir hafa átt við aðra notendur úr pósthólfi þeirra. Hins vegar breytist nafn þess sem eyðir prófíl sínum í “óvirkur notandi” í pósthólfi annarra notenda. Slík samskipti auglýsenda og giggara eyðast hins vegar ef báðir eyða prófílum sínum.

Eftir að auglýsendur eða giggarar eyða prófílum sínum geymum við þó upplýsingarnar í gagnagrunni okkar í 90 daga til viðbótar. Það gerum við svo við getum aðstoðað þig við að endurheimta upplýsingarnar ef þú eyddir þeim fyrir mistök eða ef þú skiptir um skoðun. Að 90 dögum liðnum eyðum við þeim endanlega og þá er ekki hægt að sækja þær aftur.

Giggó eyðir persónuupplýsingum þínum ef (i) ekki er lengur nauðsynlegt að geyma þær í þeim tilgangi sem þeirra var aflað eða með þær unnið, (ii) vinnslan er ólögmæt, (iii) þú andmælir vinnslunni og ekki eru fyrir hendi lögmætar ástæður fyrir vinnslunni sem ganga framar rétti þínum, (iv) slíkt ber að gera samkvæmt lagaskyldu eða (v) þú hefur afturkallað samþykki þitt fyrir vinnslu okkar á persónuupplýsingum þínum.

Í sumum tilvikum kann hins vegar að þurfa að geyma einhverjar persónuupplýsingar í einhvern lengri tíma en áður hefur verið nefnt, einkum ef við þurfum á þeim að halda til að vernda lögmæta hagsmuni okkar eða vegna lagaskyldu. Í slíkum tilfellum geymum við aðeins þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar í þeim tilgangi og eyðum þeim eins fljótt og auðið er.

9. Réttindi þín samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni

Persónuverndarlöggjöfin veitir skráðum einstaklingum ýmis konar réttindi, m.a. til fræðslu og upplýsinga um það hvort og hvernig unnið er með persónuupplýsingar þínar í Giggó. Slík réttindi geta þó verið háð takmörkunum sem leiða, m.a. af lögum, hagsmunum annarra eða lögmætum hagsmunum Alfreðs ehf. Í kafla 9.1.- 9.3. er fjallað stuttlega um þessi réttindi án þess að um tæmandi talningu sé að ræða eða sérstaklega vikið að mögulegum takmörkunum.

Ef ekki er um að ræða takmarkandi aðstæður, þá verður Giggó við beiðnum varðandi neðangreind réttindi þér að kostnaðarlausu nema beiðni sé tilefnislaus, óhófleg eða ef farið er fram á afhendingu fleiri en eins afrits af persónuupplýsingum, en í þeim tilvikum getur Giggó annað hvort farið fram á sanngjarnt endurgjald vegna kostnaðar eða neitað beiðni. Nauðsynlegt er fyrir einstaklinga að sanna á sér deili þegar þeir óska eftir að neyta réttinda sinna.

9.1. Aðgangsréttur og flutningsréttur

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um hvort Giggó vinnur persónuupplýsingar um þig. Jafnframt áttu rétt til aðgangs að þeim upplýsingum. Þá áttu einnig rétt á ákveðnum lágmarksupplýsingum um tilhögun vinnslu sem m.a. eru veittar í stefnu þessari.

Þegar upplýsingar eru unnar á grundvelli samþykkis eða samnings áttu rétt á að fá afhentar upplýsingar, sem þú hefur sjálfur látið okkur í té. Þá geturðu óskað eftir að slíkar upplýsingar verði sendar beint til annars ábyrgðaraðila ef það er tæknilega mögulegt með auðveldum hætti.

9.2. Réttur til leiðréttingar og eyðingar

Í flestum tilvikum geta notendur sjálfir leiðrétt og eytt persónuupplýsingum sínum í Giggó appinu, en í þeim tilvikum sem það á ekki við getur þú óskað eftir því að rangar eða óáreiðanlegar upplýsingar um þig séu leiðréttar. Í ákveðnum tilvikum átt þú jafnframt rétt til þess að tilteknum persónuupplýsingum um þig sé eytt.

Umsagnir og stjörnugjöf notenda eru lýsing á upplifun notenda af samstarfi við hvorn annan um tiltekið gigg. Þær verða ekki fjarlægðar nema við teljum að um sé að ræða skýrt brot gegn notkunarskilmálum Giggó, einkum 2.3. kafla þeirra.

9.3. Réttur til að andmæla eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga

Þú átt rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga vegna sérstakra aðstæðna þinna þegar þær eru unnar á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar eða þriðju aðila. Jafnframt áttu rétt á að andmæla vinnslu varðandi þig vegna beinnar markaðssetningar og þá verður vinnslu í slíkum tilgangi hætt. Þessu til viðbótar getur þú við tilteknar aðstæður, s.s. ef ágreiningur er um áreiðanleika upplýsinga, farið fram á takmörkun vinnslu.

10. Samskiptaupplýsingar

Hafir þú fyrirspurnir eða athugasemdir sem varða vinnslu persónuupplýsinga hjá Giggó er hægt að senda tölvupóst á netfangið giggo@giggo.is. Þú átt einnig rétt á því að kvarta til Persónuverndar komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga þinna. Við vonum hins vegar að þú leitir til okkar fyrst með mál sem tengjast persónuvernd svo við getum aðstoðað þig. Kjósir þú að snúa þér beint til Persónuverndar getur þú sent tölvupóst á netfangið, postur@personuvernd.is.

11. Endurskoðun Persónuverndarstefnu

Giggó áskilur sér rétt til þess að endurskoða og breyta persónuverndarstefnu sinni eins og þörf krefur svo hún endurspegli vinnslu persónuupplýsinga á hverjum tíma. Breytingar á persónuverndarstefnu Giggó eru tilkynntar í appi Giggó.

Þessi persónuverndarstefna gildir frá og með 02.01.2024.