9½ atriði sem auka öryggi þitt á Giggó

Giggó er góð redding ef þú þarft að að auglýsa eftir aðstoð og semja við fólk um að taka giggið. Velur þú hagstæðasta tilboðið eða giggara sem auðvelt er að treysta miðað við stjörnugjöf eða umsagnir?
Giggó hjálpar þér að finna fólk sem hægt er að treysta. Rafræn auðkenning, stjörnugjöf og umsagnir annarra eiga hjálpa þér að finna trausta aðila í gegnum Giggó. Og mundu að þú átt ekki að þurfa að greiða fyrir vinnuna fyrirfram.
Til að allt gangi eins og smurt er mikilvægt að allir séu á sömu blaðsíðu. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga þegar þú auglýsir giggið á Giggó:
1. Lýstu verkefninu sem best
Útskýrðu verkefnið eins vel og þér er unnt. Þarf sérstök verkfæri eða sérþekkingu til að klára verkið? Þú getur notað ljósmyndir til að sýna hvað þú vilt láta gera fyrir þig. Hvenær á verkefninu að vera lokið? Hvernig verður það greitt? Hafðu þetta klárt og kvitt strax í upphafi.
2. Settu fram raunhæfa verðhugmynd
Ef verðtilboðið hljómar of gott til að vera satt þá er það kannski bara út í hött. Skoðaðu dæmi um sambærileg verkefni. Passar tilboðið við fyrirhöfn og tímann sem verkið tekur? Raunhæf verðhugmynd skilar betra verki og gerir samskiptin betri í framhaldinu.
3. Fáðu rafræna auðkenningu
Giggó býður öllum notendum að auðkenna sig rafrænt til að auka traust og hreinskiptin samskipti. Rafræn skilríki minnka líkurnar á að notendur sigli undir fölsku flaggi og þar með úr óheiðarlegum viðskiptum.
4. Skoðaðu umsagnir og stjörnugjöf
Tékkaðu á prófíl giggarans, stjörnugjöf og umsagnir. Er þetta verktaki með sveins- eða meistarabréf eða aðrar vottanir. Það er léttara treysta fagfólki með langa og farsæla sögu og á prófílnum. Eru ljósmyndir af fyrri verkum? Það er léttara að treysta fólki með gott orðspor.
5. Ekki greiða fyrirfram
Hafðu varann á ef ef giggari biður um fyrirframgreiðslu, hvort sem það er upp í vinnu eða efniskostnað. Ein besta vörnin gegn svikagiggum er að ganga frá greiðslum að giggi loknu.
6. Svaraðu fljótt og skýrt
Gerðu þér far um að svara fyrirspurnum án tafar og gerðu kröfu um það sama frá öðrum. Ef eitthvað breytist, t.d. ef giggara seinkar eða aðstæður breytast hjá þér þá er mikilvægt að láta vita. Það getur alltaf eitthvað komið upp á sem yfirleitt má leysa með því bara að tala saman.
7. Hafðu svæðið klárt
Hreinsaðu svæðið þar sem giggarinn á að vinna. Hafðu efni og verkfæri til taks ef um það er samið. Hvar er gengið inn? Og hvar er best að leggja ef giggarinn kemur á bíl? Ef þú passar upp á litlu atriðin þá gengur giggið hraðar fyrir sig.
8. Virtu tíma annarra
Giggarar eru oft með marga bolta á lofti og þurfa að skipuleggja tíma sinn vel. Gættu þess að einhver sé heima á umsömdum tíma. Ef planið breytist eða þú hættir við giggið – láttu þá vita strax.
9. Taktu mynd á undan og á eftir
Smelltu mynd af vettvangi giggsins bæði fyrir og eftir. Ljósmynd getur leyst úr ágreiningi ef útkoman er önnur en að var stefnt, t.d. ef um er að ræða viðgerðir, þrif eða tiltekt.
9½ . Gefðu sanngjarna umsögn
Gættu þess að gefa giggaranum sanngjarna einkunn. Haltu þig við staðreyndir frekar en tilfinningar ef þú hefur athugasemdir við verkefnið. Sanngjörn umsögn hjálpar góðum giggurum og hjálpar öðrum að taka rétta ákvörðun.
Takk fyrir að hjálpa okkur að gera Giggó að traustum vettvangi til að stytta verkefnalistann svikalaust.
