·

·

Kjartan Hallur

Kjartan Hallur

Þú finnur muninn

Þú finnur muninn

Þú finnur muninn

Það er ekki að sjá að við höfum breytt miklu en þú finnur muninn. Við vorum að gera nettar breytingar á viðmóti sem auðvelda notendum lífið.

Það er ekki að sjá að við höfum breytt miklu en þú finnur muninn. Við vorum að gera nettar breytingar á viðmóti sem auðvelda notendum lífið.

Tveir símar sýna lista yfir gigg í Giggó appinu
Tveir símar sýna lista yfir gigg í Giggó appinu

Bjöllutáknið efst til hægri 

Efst í hægra horninu í Giggó-appinu er bjalla og ef hún er með rauðum punkti þá þýðir það að þú eigir ný eða ólesin skilaboð. Með því að smella á bjölluna opnar þú skilaboðaskjóðuna þína á Giggó og sérð öll þín samskipti á einum stað. Þú þarft ekki að opna hvert og eitt gigg, bara opnar skilaboðaskjóðuna og sérð hvað er efst á baugi. 

Prófíllinn neðst til hægri 

Fastagestir Giggó sjá það fljótt að núna er léttara að breyta stillingum þar sem prófíltáknið er neðst í hægra horninu á skjánum. Þessi litla breyting á viðmóti appsins flýtir verulega fyrir þeim sem vilja uppfæra upplýsingar sínar eða breyta stillingum í appinu.

Það er ókeypis að auglýsa

Á Giggó eru fleiri þúsund giggarar að bíða eftir næsta verkefni. Ert þú með ókláruð verkefni á listanum sem Giggó getur hjálpað þér að klára? Skráðu þig á Giggó, lýstu því sem þú vilt láta gera fyrir þig og birtu auglýsinguna. Svo getur þú bara valið úr tilboðum í verkið í rólegheitunum. 

Vertu í bandi! 

Við viljum að Giggó auðveldi fólki að eiga góð samskipti. Ef þú hefur ábendingar sem gætu hjálpað okkur að bæta þjónustuna þá máttu gjarnan senda okkur skilaboð í spjallinu eða tölvupóst á giggo@giggo.is.