Giggó er app og vefur úr smiðju Alfreðs ehf.
Alfreð hefur þjónað íslenskum vinnumarkaði á annan áratug og hefur áunnið sér traust landsmanna. Yngri kynslóðir taka því í dag sem sjálfsögðum hlut að geta skoðað flestöll laus störf á einum stað og sótt um þau á einfaldan hátt. Giggó sprettur úr sama jarðvegi og vinsælasti atvinnumiðill landsins.

Fljótlegt, öruggt og frítt
Það er ókeypis að auglýsa á Giggó en til að búa til eða sækja um gigg þarf alltaf rafræna auðkenningu. Hægt er að auglýsa nafnlaust en leyndinni er aflétt um leið og fólk byrjar að semja um verkefni. Giggarar þurfa líka rafræna auðkenningu sem tryggir heiðarleg samskipti og öruggari viðskipti.
Auðkenning, stjörnur og umsagnir
Giggó er samfélag þar sem notendur auglýsa frítt en sinna um leið mikilvægu gæðaeftirliti. Að verki loknu fá giggarar einkunn, stjörnugjöf og umsagnir sem hjálpa okkur öllum að sjá hvaða giggarar standa sig og hverjir ættu bara að halda sig við dagvinnuna.
Það er alltaf gaman að uppgötva nýjar leiðir til að redda hlutunum. Giggó er rétt að slíta barnsskónum en af viðtökum almennings má ætla að Giggó verði brátt ómissandi partur af tilveru landsmanna líkt og Alfreð.