Vitlaust tagg, ekkert gigg!
Til að finna rétta verkefnið á Giggó þarf að velja rétta taggið. Við notum þessar merkingar til að tengja þig við það sem þú ert að leita að – hvort sem þú ert að auglýsa verkefni eða leita þér að næsta giggi.
Er ekki kominn tími til að tagga?
Til að finna rétta verkefnið á Giggó þarf að velja rétta taggið. Við notum þessar merkingar til að tengja þig við það sem þú ert að leita að – hvort sem þú ert að auglýsa verkefni eða leita þér að næsta giggi.
Ertu að leita að giggi?
Þegar einhver auglýsir gigg þá stingur Giggó upp á merkingum sem passa við lýsinguna. Viðkomandi getur síðan breytt um tögg eða bætt við fleiri merkingum.
Ef þú ert með eitthvað af sömu töggum á þínum prófíl þá sendum við þér skilaboð um að það sé komið gigg fyrir þig. Það skiptir því miklu máli að velja rétt tögg á sinn prófíl.
Vitlaust tagg – ekkert gigg!
Til að sækja um gigg þarftu að hafa a.m.k. eitt tagg á giggaraprófíl þínum sem passar við verkefnið. Annars færðu ekki að bjóða í giggið.
Það skiptir máli fyrir fólk sem auglýsir á Giggó að fá tilboð frá giggurum með reynslu, hæfni og áhuga á verkefninu. Ef giggaraprófíllinn þinn er með töggin #Sorpuferðir og #Prófarkalestur þá getur þú ekki sótt um gigg með taggið #Pípari. Þá færðu villumeldingu og ábendingu um að töggin þín passi ekki við giggið.
Ef þetta er hins vegar gigg sem þú hefur áhuga á og hæfni til að taka þá er um að gera að uppfæra prófílinn þinn með rétta tagginu, vista breytingarnar og sækja svo um á ný.
Vertu í bandi
Okkur er annt um að fólk finni það sem það leitar að á Giggó og erum alltaf að þróa kerfið í þá átt. Ef þú hefur ábendingar eða reynslusögur sem gætu hjálpað okkur að gera betur þá máttu gjarnan senda okkur skilaboð í spjallinu eða tölvupóst á giggo@giggo.is.



