Einu sinni póstað – þú getur ekki hætt!
Það er eins með Giggó og margt annað í lífinu. Við hikum gjarnan við að taka fyrsta skrefið og prófa nýja hluti. En sem betur fer tekur enga stund að læra að nota Giggó. Þjónustukannanir okkar hafa leitt í ljós að þegar notendur okkar hafa póstað einu giggi þá kemur ekkert annað til greina, næst þegar þörf er á hjálparhönd.

Fljótlegt og öruggt og frítt
Það kemur fólki þægilega á óvart hversu fljótlegt það er að redda málunum með Giggó. Þú bara póstar giggi og tilboðin streyma inn. Þú finnur líka fljótt að það er öruggara að auglýsa gigg á Giggó en að pósta því á samfélagsmiðlum. Giggó sér um að tengja þig við fagfólkið sem þú ert að leita að og þú velur úr tilboðum. Þú tapar engu á því að prófa – það er ókeypis að auglýsa.
Þú getur auglýst nafnlaust
Til að pósta giggi þarftu að auðkenna þig rafrænt. Þú ræður því samt alveg hvort auglýsingin þín birtist undir nafni. Þú getur valið að auglýsa nafnlaust en færð eftir sem áður tilboð í giggið. Það er ekki fyrr en þú opnar á samtal við giggara að þeir fá að sjá hver þú ert – þitt nafn birtist aðeins hjá þeim sem þú treystir.
Láttu fagfólkið leita til þín
Þú þarft ekki að hringja út og suður eða senda fyrirspurnir í tölvupósti. Þú lýsir verkefninu og hvaða kröfur giggarinn þarf að uppfylla. Er þetta verkefni sem þarf fagmenntun, t.d. pípara með meistarabréf eða rafvirkja með sveinspróf? Þú setur fram verðhugmyndir og stýrir því hvaða giggarar mega gera tilboð í verkefnið.
Auglýstu giggið næst þegar þú þarft á aðstoð að halda. Það kostar þig ekki krónu en getur sparað þér ómældan tíma og fyrirhöfn.