Talandi um gott gigg!
Við hjá Giggó viljum hjálpa fólki að tala saman og komast að góðri niðurstöðu fyrir báða aðila. Notendur geta skipst á textaskilaboðum á vefnum og í appi en núna er einnig hægt að spjalla símleiðis í appinu eða jafnvel opna fyrir myndavélina og taka vídeóspjall um giggið.
Nú erum við að tala saman!
Við hjá Giggó viljum hjálpa fólki að tala saman og komast að góðri niðurstöðu fyrir báða aðila. Notendur geta skipst á textaskilaboðum á vefnum og í appi en núna er einnig hægt að spjalla símleiðis í appinu eða jafnvel opna fyrir myndavélina og taka vídeóspjall um giggið.
Símtal í gegnum appið
Ertu klár í giggið en enginn á staðnum til að taka á móti þér? Eða viltu heyra aðeins í giggaranum áður en verkefnið fer í gang? Hvort sem þú ert að auglýsa gigg eða taka að þér verkefni þá getið þið núna tekið spjallið símleiðis í Giggó appinu.
Mörg okkar kjósa að deila símanúmerinu okkar aðeins með fáum útvöldum: vinum, vinnufélögum og ættingjum. Því fylgir jú viss áhætta að gefa ókunnugu fólki upp númerið sitt. Þú þarft ekki að deila símanúmerinu þínu að óþörfu á Giggó.
Núna getur þú valið þá samskiptaleið sem þér hentar og spjallað í gegnum Giggó appið, þ.e. ef viðmælandi þinn samþykkir það. Það þarf samt alltaf samþykki beggja aðila til að taka spjallið símleiðis. Þú ræður því ef þú vilt frekar halda áfram að nota textaskilaboð til að ræða um giggið.
Myndsímtal í gegnum appið
Stundum er best að útskýra hlutina í þráðbeinni útsendingu. Ef þú vilt sýna aðstæður eða útskýra verkið í myndsímtali þá er það líka í boði. Þú bara gefur Giggó aðgang að myndavélinni á símanum þínum og færir spjallið yfir í vídeóspjall.
Ef ljósmyndin segir meira en þúsund orð þá getur stutt myndsímtal verið á við langa textalýsingu. Þú stjórnar því samt alltaf hvaða samskiptaform þú vilt hafa. Aðalmálið er að núna hefur þú valið um að heyrast og sjást á Giggó.
Vertu í bandi
Við viljum að Giggó auðveldi fólki að eiga góð samskipti. Ef þú hefur ábendingar eða reynslusögur sem gætu hjálpað okkur að bæta þjónustuna þá máttu gjarnan senda okkur skilaboð í spjallinu eða tölvupóst á giggo@giggo.is.



