Auðkenning, fagmennska og öryggi á Giggó
Nýrri tækni fylgja oft gömul vandamál í nýjum pakkningum. Svikahrappar hafa ávallt verið hugvitsamir og beitt öllum tiltækum ráðum til að pretta fólk. Upp á síðkastið hefur tölvutæknin verið þeirra uppáhaldsvopn.
Nýrri tækni fylgja oft gömul vandamál í nýjum pakkningum. Svikahrappar hafa ávallt verið hugvitsamir og beitt öllum tiltækum ráðum til að pretta fólk. Upp á síðkastið hefur tölvutæknin verið þeirra uppáhaldsvopn. Svindlarar elska að setja upp gerviprófíla á samfélagsmiðlum til að villa á sér heimildir. Slíkir prettir eru hins vegar ekki í boði á Giggó þar sem rafræn auðkenning er algjört skilyrði fyrir samskiptum á milli notenda.
Engin auðkenning – ekkert gigg
Það gefur augaleið að nota stafrænar lausnir til að verjast stafrænum ógnum. Með rafrænni auðkenningu sláum við helsta vopnið úr höndum þeirra sem vilja sigla undir fölsku flaggi. Fólk getur eftir sem áður skráð sig inn á Giggó, fyllt út prófílinn sinn, sett inn myndir og gert allt klárt í næsta gigg. En til að búa til gigg eða sækja um gigg þarf rafræna auðkenningu.
Kröfur um fagmenntun og réttindi
Viltu bara sjá tilboð frá giggurum með réttindi í sínu fagi? Þú getur sett þín skilyrði og kröfur um fagmenntun þegar þú auglýsir giggið. Þetta á þó fyrst og fremst við um verkefni fyrir pípara, rafvirkja, múrara, málara og aðra á opinberum listum yfir iðnmenntað fagfólk. Hakaðu við meistarabréf eða sveinspróf til að einskorða leit þína við fagmenntaða giggara með tilskilin réttindi.
Meira öryggi og minna fúsk
Umsagnir og stjörnugjöf gefa skýra mynd af fyrri verkefnum og frammistöðu giggara. Með því móti leggja notendur Giggó sitt af mörkum við að búa til innra gæðaeftirlit. Stjörnugjöfin er einföld leið til að hjálpa öðrum notendum að sjá hvaða giggurum er hægt að treysta. Fúskarinn verður fljótt undir í samkeppninni ef orðsporið laskast á meðan giggarar með góðar umsagnir og margar stjörnur uppskera fleiri verkefni.
Vertu í bandi
Okkur er annt um öryggi þitt á Giggó sem á að vera öruggur vettvangur fyrir gigghagkerfið á Íslandi. Ef þú hefur ábendingar eða reynslusögur sem gætu hjálpað okkur í þeirri baráttu þá máttu gjarnan senda okkur skilaboð í spjallinu eða tölvupóst á giggo@giggo.is.



